Skemmtið ykkur vel með Bjútíboxinu! Snyrtivörur, förðun, tíska, nýtt dót... allt sem er skemmtilegt! Bjútíboxinu stjórnar make up artisti sem er alltaf að læra eitthvað nýtt :)
sunnudagur, 17. júlí 2011
Förðun gærdagsins :)
Ég notaði YSL Pure Chromatics pallettu fyrir efra lúkkið, svo er ég líka með hinn yndislega Sensai (Kanebo) eyeliner penna. Var alveg búin að gleyma hvað hann fáránlega góður! Shiseido maskari og lúkkið er klárt.
Þetta er pallettan fallega. Hvíti yfir allt, ljósfjólublái yfir lokið og dökkfjólublái til að skyggja. Sorrý myndatökuna, hún sýnir skygginguna nánast ekkert. Svo setti ég græna sem eyeliner línu og eyelinerinn sjálfan ofan á - svo græni sést bara smá (again, afsakið myndatökuna... myndavélin mín höndlar svona förðunarmyndir ekki nógu vel!)
Svo vissi ég ekki fyrr en eftir á að það má nota þessa augnskugga blauta líka (bleyta aðeins í burstanum fyrst og dúmpa svo í litinn) og þá kemur liturinn betur fram - það hlaut eitthvað að vera! Geri það pottþétt næst.
Mig langaði að breyta aðeins til fyrir kvöldið og notaði augnskugga frá NN Cosmetics sem ég er húkkt á - gerði svona hálfgert smokey bara yfir allt en af því hinir litirnir voru undir kom þessi náttúrulega allt öðruvísi út en venjulega. Svo notaði ég silfraðan til að line-a ofan á eyelinerinn og lýsa aðeins upp. Ó, svo gaman að gera allskonar og leika sér með liti og form!
Ekki vera hræddar að prófa eitthvað nýtt, með litum sem þið notið aldrei eða skyggingum sem ykkur finnst skrítnar fyrst. Í versta falli þrífið þið það af ;)
xoxo
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Alltaf flott Hildur!
SvaraEyðaTakk takk ;)
SvaraEyða