
Hér eru Konad naglastimpilverkfærin mín.
Þetta er gert í nokkrum fljótlegum skrefum, maður þarf líka að vera fljótur því naglalakkið er mjög fljótt að þorna.
Fyrst velur maður sér mynstur og lit af naglalakki.
Þá lakkar maður yfir mynstrið, tekur sköfuna og skefur ofan af mynstrinu.
Þá er lakkið eftir ofan í mynstrinu.
Svo tekur maður stimpilinn og þrýstir ofan á lakkið+mynstrið.
Þá er lakkið komið á stimpilinn á maður þrýstir stimplinum á þá nögl sem maður vill fá mynstrið.
Voilá!
Finnst þetta rosalega sniðugt dót - hægt er að versla sér alls konar mismunandi liti og gerðir af plötum með mynstrum á. Það má nota hvaða lakk undir og yfir en það sem er notað í stimplana er sérstakt.
Þetta sem ég keypti mér kostaði um 3500 krónur - læt það nú vera miðað við hvað maður notar lítið í einu á ég eftir að nota þetta lengi!
xoxo
ég á helling af svona! keypti mér nokkrar feik plötur út á spáni sem heita Kand, en það er mjög gaman að leika sér að þessu :P
SvaraEyða