miðvikudagur, 15. júní 2011

Vorlína Lancome

Fyrst ég kom með Dior línuna ákvað ég að henda Lancome líka inn.
Finnst þessi öllu meira lifandi og skemmtileg. Línan heitir Ultra Lavende, eða Ultra Violet upp á enskuna. Aaron de Mey er förðunargúru sem vinnur hjá þeim og þetta er, ef mér skjátlast ekki, önnur línan sem hann hannar fyrir Lancome. (Gaman að geta þess að módelið fyrir línuna, Julia Restoin-Roitfeld, er dóttir fyrrverandi ritstjóra franska Vogue, Carine Roitfeld.)
image
Flott mynd, aðeins öðruvísi augnförðun sem verður gaman að prófa.
image
Í haust komu þeir með svona duft-augnskugga eins og sjást þarna vinstra megin. Þeir eru ótrúlega skemmtilegir, gaman að vinna með þá og auðvelt að blanda saman og gera að sínu. Nú líta 3 nýir litir dagsins ljós og þeir eru bara nokkuð flottir! Sá fjólublái og silfraði eru eiginlega ljósari týpur af þeim sem komu í haust en sá gyllti er alveg nýr. Svo er það gel-eyeliner í fjólubláu og augnblýantar.
image

Hafið þið tekið eftir rósinni sem er alltaf hjá Lancome? Hún er náttúrulega í merkinu, en þeir troða henni hvar sem þeir geta ;) Ekkert slæmt, bara pínu fyndið ef maður fylgist með því.
En þetta er kinnalitur - eða eiginlega “multitaskarinn” í línunni. Bleika er notað sem kinnalitur, jafnvel hægt að dekkja það aðeins með fjólubláu fiðrildunum og bláu rósinni, og svo er hægt að nota fiðrildin sem augnskugga og bakgrunnin sem highlighter eða bara hvað sem er! Þau eru svolítið sniðug þarna í Frakklandi… image

Nýr undirfarði sem heitir Dewy Glow - væntanlega eitthvað fyrir þær sem eru með þurra/líflausa húð og vantar smá búst! Þrír glossar, frekar hlutlausir litir en ég held að þessi neðsti hérna gæti verið flottur.
Svo eru það tvö naglalökk, að sjálfsögðu fjólublátt og svo silfrað. Verður gaman að sjá hvernig þau koma út. Gef þessari línu betri einkunn en Dior línunni, mér finnst vorið eiga að vera svona líflegt eins og hjá Lancome!
xoxo

Engin ummæli:

Skrifa ummæli