miðvikudagur, 15. júní 2011

Sensai hreinsivörur

 Í haust tók ég ákvörðun þess efnis að fara vel með húðina mína. Allavega í andlitinu, hef ekki komist mikið lengra en niður á háls, en í andlitið set ég flest aukaefni svo mér finnst mikilvægast að gera extra vel við húðina þar.
Ég þríf hana á hverju kvöldi (er ekki enn farin að gefa mér tíma í að þrífa hana á morgnana líka) með Sensai hreinsikremi og -froðu á eftir. Kremið nær öllum förðunarvörum af en froðan nær betur upp úr svitaholunum, allri mengun og drasli sem safnast á húðina yfir daginn. Ef maður notar svona tvennu á hverjum degi þarf maður sjaldnar að nota djúphreinsi og/eða skrúbba og húðin nær góðu jafnvægi.
Ég á svo augnkrem (sem er í gelformi svo það er létt og frískandi) og rakavatn frá Sensai líka.
Það fylgdu svona skemmtilegir "miðar" með augnkreminu svo maður getur notað það sem augnmaska. Ég gerði það í kvöld og þá er maður svo endurnærður á eftir. Yndislegt alveg.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli