
Mest af öllu langar mig að prófa þetta, las um þetta í Cosmo fyrir langalangalöngu en lét aldrei verða af því að kaupa, hélt reyndar að þetta væri alls ekki til á Íslandi. Þetta er sem sagt Sea Salt Spray sem ýtir undir náttúrulega “wavy” hár, svona eins og við höfum svo oft séð hjá henni Blake Lively

Þessar svokölluðu beach waves eru búnar að vera í tísku í svolítinn tíma og gera ótrúlega mikið fyrir sítt, venjulegt hár. Það besta er að maður þarf ekki að eyða fullt af tíma í að krulla með járni og þar af leiðandi fer það betur með hárið!
Í þessu spreyi frá label.m er hita- og UV vörn svo það er algjör snilld að nota það yfir sumarið þegar maður er mikið úti í sólinni.

Á hinn bóginn langar mig líka að prófa þetta Smoothing Cream, sem “róar” hárið ef svo má að orði komast, gerir það slétt og fínt og verndar það einnig gegn hita og UV-geislum.
Þá ætla ég að skjótast út í búð! ;)
Hvaða hárvörum mælið þið með? Hafið þið prófað eitthvað frá label.m eða eruð þið kannski háðar Bed Head? :)
xoxo
Mér lýst mjög vel á þetta krulluefni, ertu búin að prófa það? Hvað finnst þér?
SvaraEyðaÉg er alltaf að leyta að hinu fullkomna krulluefni þar sem það er gífurlega þægilegt að geta stokkið út með blautt hárið ef maður þarf bara rétt að klístra einu efni í það og viti menn hárið krullast fallega...
Já heyrðu sko þetta er mjög þægilegt, það er ekki spurning, ég er ekki með nógu mikla liði fyrir til að nota þetta eitt og sér en ef ég liða hárið á mér fyrir og set þetta svo í þá gefur það akkúrat lúkkið sem ég vil!
SvaraEyðaSvo þarf maður eiginlega að spreyja smá hárspreyi yfir til að það haldist betur.
Það er mjög sniðugt ef þú kíkir t.d. í Hárkompuna að kaupa lítinn pakka með 4x 50 ml flöskum, þá geturðu valið hvað sem þú vilt í, ég valdi hárnæringu, Shine Spray og tvo Sea Salt Spray. Það kostar 3.900,- og þá geturðu prófað þetta allt og séð hvernig þú fílar, í staðinn fyrir að kaupa stórt af öllu og fíla kannski ekki helminginn ;)