miðvikudagur, 15. júní 2011

Victoria's Secret gloss

Vinkona mín plataði mig í að panta bikiní frá VS um daginn, pakkinn kom svo loksins og ég var búin að steingleyma að ég smellti mér á tvö gloss með! Annað heitir Kissaholic og er með svona “plumping effect” og á þannig að gera varirnar þrýstnari.
image
Ég fékk þetta lengst til hægri, einmitt minn litur, ekki of bleikt og alls ekki mikill litur yfir höfuð. Mér finnst það voða fínt, maður finnur pínu seiðing í vörunum eftir að maður setur það á, en það endist ekki mjög lengi. Lyktin er pínu sérstök en venst ótrúlega og nú er mér farið að þykja hún bara mjög góð! (Jafnast ekkert á við lyktina af NYX glossunum, hún er guðdómleg!)
Það sem fer mest í taugarnar á mér er að það er bursti en ekki svampur á skaftinu til að bera á varirnar, og mér finnst hann alltaf fara út um allt og maður þurfi að vanda sig miklu meira en ella. Frekar vandræðalegt í afgreiðslustörfum að vera með gloss upp og niður fyrir varirnar ;)
Hinn glossinn heitir víst Soothing Lip Balm og er alveg pottþétt með piparmyntu í. Mér finnst það æði og hann gefur líka svo rosa mikinn glans! Hef nú ekki prófað enn, en það væri gordjöss að setja smá af honum yfir mattan varalit ef maður er í þannig stuði!
image

Þessi sem ég fékk er alveg glær, en þeir eru til í nokkrum litum. Flestir eru svona frekar bleikir. Ég er með voðalega putta+varafóbíu (hef aldrei fengið frunsu og ætla að halda því þannig!), get t.d. ekki lánað varalit eða gloss, svo ég get ekki hugsað mér að nota þetta í vinnunni, bara þegar ég er með tandurhreinar hendur svo ég setji ekki fullt af bakteríum í þetta krútt. Ég er bara ánægð með þessi kaup en finnst leiðinlegt að þurfa að dýfa puttunum í varasalvann.
xoxo
p.s. ekki gleyma facebook síðunni!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli