Förinni var heitið á útsölu í versluninni Jöru á Akureyri. Þar var mjög góður afsláttur, 20% af öllu en meiri afsláttur (30-50%) af völdum vörum.
Ég keypti hyljara sem mig hefur lengi langað í, nýja Shiseido hyljarann. Hann er mjög kremaður, í þykkari kantinum. Ég keypti lit númer 6 því ég á það til að fá mjög bláa bauga og þar sem 6 er mjög gulleitur hentar hann fullkomlega í að jafna baugana út.
Ég keypti líka Sensai rakavatnið sem ég get ekki hætt að tala um, en ég var nýbúin með mitt og var að reyna að bíða með að kaupa nýtt, en ég er strax komin með þurrkubletti á húðina! Ótrúlegt hvað þetta hefur góð áhrif.
En svo ákvað ég að kíkja í Lind líka, því mig langaði að fylla upp í Bobbi Brown pallettuna mína. Það gerði ég sko og gott betur! Ég keypti tvo augnskugga, dökkbláan sem heitir Sapphire og ljósgrænan sem heitir Mint. Afgreiðslustúlkan gaf mér svo augnskugga í kaupbæti, ótrúlega fallegan gylltan lit sem heitir einfaldlega Gold. Ég er svo ánægð því ég hef svo lengi leitað að þessum fullkomna gyllta lit, og svei mér þá, ég held ég hafi fundið hann!
Þannig að nú verð ég að kaupa mér nýja pallettu til að fylla ;)
Set mynd með af árangrinum og svo kemur ný færsla með sýnishornum af Bobbi Brown litunum.

xoxo
Engin ummæli:
Skrifa ummæli