Persónulega varð ég fyrir vonbrigðum þegar ég sá lookið, mér finnst það vera mjög svipað og eldri línur frá þeim, bara aðrir tónar í litum. Línan er sem sagt öll grá og bleik, ein augnskuggapalletta með grábrúnum tónum. Lookið er mjög mjúkt og fágað, sem er að sjálfsögðu Dior stíllinn.

Þetta er sem sagt lookið.

Þeir koma með 2 nýja naglalakksliti, gráan og föööölbleikan, stakan gráan augnskugga, augnblýant og maskara.

Hér eru palletturnar, í efstu til vinstri er eyeliner í neðra horninu.
Eins og þið sjáið, grátt, grábrúnt og bleikt. Sætt, en ekkert rosalega frumlegt…

Ég er svo rosalega hrifin af Sérum de Rouge frá Dior (lengst til vinstri) og þeir koma með 2 nýja liti í því, sem mér sýnast vera flottir. Gráa glossið hlakka ég til að sjá á vörum. Tveir nýir varalitir líka, sætir :) Langaði að deila þessu með ykkur þó ég sé svolítið sein, í heildina finnst mér línan bara allt í lagi. Einhverjum finnst hún örugglega geggjuð! Ég hlakka samt til að prófa naglalakkið, þetta gráa. Alltaf sjúk í naglalökk!
Hvað finnst ykkur? :)
xoxo
Engin ummæli:
Skrifa ummæli