
Spreyið er auðvelt í notkun og burstarnir þorna fljótt. Það hentar því vel fyrir þær sem eiga fáa bursta og vilja nota sama í mismunandi liti, en einnig þær sem farða marga og þurfa að hreinsa á milli. Þetta sem ég á (var að kaupa!) er frá Bobbi Brown og er alkóhólfrítt. Var reyndar bara að prófa það í fyrsta skipti en er strax að fíla það í botn! Svo er líka hægt að nota alkóhól og blanda því í vatn og hella í spreybrúsa.
Svo er líka hægt að nota barnasjampó á burstana, það hefur reynst mörgum vel. Inn á milli má þá líka nota hárnæringu á þá.
Farið vel með ykkur og burstana ykkar ;)
xoxo
Engin ummæli:
Skrifa ummæli