Var með þetta Alessandro lakk um jólin:
Þetta er annað lakkið sem ég kaupi frá Alessandro og mér líkar þau mjög vel. Mér finnst mjög skemmtilegt að flestir litirnir koma í litlum glösum, 5ml, en líka stórum - svo maður hefur smá val. Það er eini gallinn við OPI lökkin, að það er ekki séns að ég klári 13 ml glas af blágrænum glimmer lit, þó mér finnist hann svo flottur að ég
verði að eignast hann. Hjá OPI koma þeir með mini-glös af nokkrum litum úr hverri línu, en setja 4 saman í pakka svo maður getur ekki valið sér.
Þetta finnst mér Alessandro hafa fram yfir OPI.
Það sem ég hef nýlega uppgötvað hjá Alessandro er Nail Spa línan þeirra. Þar hafa þeir allt til alls til að hirða vel um neglurnar, ég keypti t.d. Mango Nail Serum, sem á að styrkja neglurnar, og fékk með lítið glas af Cuticle Remover (naglabandseyði), sem mér finnst orðið algjört möst að nota öðru hverju. Hann reyndar "eyðir" naglaböndunum ekki beint, það er eins og hann mýki þau samt upp þannig að það er auðveldara að ýta þeim aftur og, jú, taka þau af. Allavega, algjört möst.
Mango Serum-ið er með dropateljara og maður þarf bara smá ofan á hverja nögl.
Naglabandaeyðirinn er með bursta eins og naglalakk sem ég bursta bara pínulitlu í einu yfir hvert naglaband.
Svo get ég ekki ítrekað það nóg að nota alltaf eitthvað undir naglalökk, sérstaklega undir sterka liti. Base Coat, Nail Strengthener eða eitthvað slíkt.
Það eru til ýmsar gerðir af yfirlökkum, ég nota Seche Vite sem er því miður ekki hægt að kaupa á Íslandi, en bæði OPI og Alessandro eru með yfirlökk í sínum línum. Yfirlökk eru oftast þykkari og meira seigfljótandi en undirlökk (base) eru oftast mjög þunn og þorna fljótt svo hægt sé að setja naglalakk beint yfir.
Svo verð ég bara að segja ykkur frá frábærri naglaþjöl sem ég fann í Body Shop um daginn, hún er ferköntuð og á hverri hlið er mismunandi þjöl, fyrst gróf til að þjala niður, fínni til að laga, enn fínni til að pússa yfir nöglina og fjórða til að gefa glans. Ég hefði aldrei haldið að neglur gætu glansað svona, þetta er eins og maður sé búinn að bóna á sér neglurnar! Ég mun héðan í frá alltaf eiga svona þjöl! Kostaði rétt um 500,- kr.
Alessandro fæst á ýmsum snyrtistofum og í Hagkaup, OPI fæst einnig á ýmsum stöðum, t.d. Jöru Akureyri, Make-Up Gallery Akureyri og Hagkaup.
Hvernig er naglarútínan ykkar?
xoxo