miðvikudagur, 15. júní 2011

YSL Exfoliating Lip Balm

Þurrar varir eru ótrúlega algengt vandamál, sérstaklega þar sem er svona kalt eins og hér. Svo fara þessar sífelldu veðrabreytingar ekkert vel með húðina, en meira um það síðar…
image
Mér datt í hug að sýna ykkur alveg frábæra vöru frá YSL sem heitir Exfoliating Lip Balm og er, eins og nafnið gefur til kynna, skrúbbur fyrir varirnar! Algjör snilld!
Það eru fíngerð korn í honum sem skrúbba allt þetta “skorpna” og þurra af, en það besta er að hann veitir næringu um leið svo það er um að gera að leyfa honum að vera á í dágóða stund. Svo er best ef maður nær að þurrka nánast bara kornin af en ekki varasalvann sjálfan, en það er frekar erfitt!
Það er mjög sniðugt að nota hann t.d. þegar maður er búinn að tannbursta en á eftir að klára eitthvað fyrir háttinn - pissa, kíkja á facebook, hátta sig o.s.frv. En passið að gera þetta ekki nema 1-2 í viku. Ef varirnar eru ekki skorpnar er um að gera að sleppa því að skrúbba en leyfa þessu bara að liggja á.
Ég finn alltaf mun þegar ég nota þetta, ég tala nú ekki um ef ég er dugleg að nota eitthvað rakagefandi um nóttina og daginn eftir!
xoxo
p.s. ef þið eigið eitthvað gott varakrem/góðan varasalva, getið þið líka skrúbbað varirnar létt með blautum þvottapoka og makað svo vel á ykkur á eftir :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli