Ég fór á smá útsölu í Body Shop um daginn.
Mig er búið að vanta gott krem á kroppinn í langan tíma og lét loks verða af því að kaupa. Almond Body Butter. Það er frekar létt lykt af því en eftir því sem ég finn hana oftar minnir hún mig meira og meira á leir. Svona leir sem krakkar nota!
Body Butter er feitara en krem (lotion) og tekur því lengri tíma að smjúga inn í húðina, sem hefur pirrað mig svolítið við Body Shop kremin. Mér finnst þau oft (hef prófað bæði Body Lotion og Butter) liggja utan á húðinni en ekki smjúga inn og veita þá næringu sem þarf í dýpri lögum húðarinnar. Mér finnst þetta svona með skásta móti en ég myndi mæla með því að setja það á fyrir háttinn.
Líkamsskrúbbur er eitthvað sem mér finnst voða þægilegt að nota í sturtunni, ég hef prófað með appelsínulykt frá þeim en ákvað að kaupa dollu með rifsberjalykt í þetta skiptið. Sé ekki eftir því, lyktin er YNDISLEG. Þó ég finni hana aðeins daginn eftir sturtu er hún alls ekki yfirgnæfandi og það er í góðu lagi að nota ilmvatn með. Hún einhvernveginn festist bara á húðinni - erfitt að útskýra. Það eru frekar stór korn í skrúbbnum og þau nuddast ekki í burtu, spurning hvort það eru hreinlega kjarnar úr rifsberjum…
Ég er allavega mjög ánægð með skrúbbinn. Ef ég þyrfti að setja eitthvað út á hann væru það umbúðirnar, ekki mjög hentugt að hafa svona skrúflok í sturtunni. Ætti frekar að vera í túpu.
Þriðji hluturinn sem ég keypti var eyeliner sem er í svona varalits-stiftisformi. Þetta kom í takmörkuðu upplagi (stóð allavega á umbúðunum) og ég ákvað að prófa einn svona dökkgrænan, grænn er jú minn litur. Ég er bara svona þokkalega ánægð með hann, maður þarf að setja nokkuð margar umferðir til að það komi almennileg lína. Reyndar er svolítið sniðugt að renna honum alveg upp úr hulstrinu og leggja hann á hliðina við augnhárin og renna honum þannig út að gagnauganu. En eins og ég sagði, það þarf að endurtaka það nokkrum sinnum til að línan sjáist.
Liturinn kom ekki vel fram, hann er dökkgrænn en virkaði eiginlega bara grá-svartur þegar hann er kominn á.
Endingin var samt góð, hann rennur ekki til yfir daginn, en ég notaði augnskuggaprimer undir og setti ljósan augnskugga alveg upp að augnbeini. Gæti jafnvel verið gott að dúmpa smá augnskugga eins nálægt (eða yfir) línuna og þið getið, það hindrar eyelinerinn í að smitast og búa til línu upp á mitt augnlok.
Endilega nýtið ykkur Ask/Spyrjið ráða hnappinn! Alltaf gagnlegt og gaman að fá spurningar og ábendingar.
xoxo

Engin ummæli:
Skrifa ummæli