miðvikudagur, 15. júní 2011

Veiðiferð í borginni :)

Ég naut góðs af því að vera frá kallinum um konudagshelgina að því leyti að það var afsláttur í bæði Make Up Store og MAC í Kringlunni - 20% (=tax free) svo gjafabréfið sem ég fékk í afmælisgjöf kom sannarlega að góðum notum!
Ég keypti minn fyrsta augnskugga frá MAC (já, þið megið hlæja og benda núna, hef aldrei verið MAC-oholic gellan) og varalit! Gríðarlega fallegur litur sem heitir Sable og er rúst-bronsaður myndi ég segja, en mynd segir meira en þúsund orð:

image

Svo er það varaliturinn, Politely Pink, hrikalega mjúkur og flottur litur! Myndi segja að hann sé akkúrat liturinn sem maður getur verið með í vinnunni - smá litur, smá glossy, ekkert of. Ég veit að skærir litir eru málið, en mér finnst svo erfitt að velja þannig án þess að prófa á mér og það var hrikalega mikið að gera, svo ég vildi vera safe í bili. Hér með lofa ég því að næsti varalitur sem ég vel mér verði öðruvísi en allir hinir sem ég á! ;) Er eftir sem áður mjög ánægð með þennan!
image


Sýni ykkur hvernig hann kemur út á vörunum við tækifæri :)
Í Make Up Store nældi ég mér í augnskugga, Metallic Wave. Þau eru með tvær gerðir af augnskuggum og þessi heitir Cybershadow. Ég er ekki 100% en ef ég skil rétt þá er Microshadow (hin týpan af augnskuggum) með meira pigmenti - þ.e. maður þarf minna af vörunni til að fá mikinn lit. Finnst þessi samt mjög fallegur og alls ekki daufur litur. Svo er líka hægt að bleyta burstann ögn og búa til fallega eyeliner-línu með honum.
image

Svo er það Face Mist-ið, ég var svo heppin að fá síðasta brúsann! Ég ætla mér að finna minni spreybrúsa og hafa með mér veskinu, það fór nefnilega ekki vel síðast þegar ég hafði stóra flösku í veskinu mínu…! Ég hef séð svona lítil ilmvatnsglös til sölu í Body Shop, kannski ég skelli mér á þannig við tækifæri.
Face Mist er “like a drink of water for thirsty skin” eins og segir á umbúðunum, þ.e. það má spreyja því yfir andlitið hvenær sem er dags og nætur til að gefa húðinni raka. Svo eru alls konar góð innihaldsefni í því sem næra og verja húðina. Ótrúlega frískandi og gott :)
image

Síðast en ekki síst, því ég er burstasjúk, keypti ég mér (vonandi) hinn fullkomna smudge-bursta. Mér finnst mig oft vanta góðan bursta til að ná að dreifa vel úr augnblýantinum og enginn þeirra sem ég á hefur heillað mig upp úr skónum svo ég hef haldið leitinni áfram. Vonandi er henni lokið hér með!
Og svona lítur djásnið út:
image
Vona að þið skemmtið ykkur við lesturinn, takk fyrir innlitið ;)

Endilega finnið Bjútíboxið á Facebook!

xoxo

Engin ummæli:

Skrifa ummæli