
Þetta er sem sagt hyljari sem er búinn að fá fullt af lofi og verðlaunum, öðrum megin er hyljarinn sjálfur sem er kremkenndur og maður notar puttana eða hyljarabursta til að setja hann á. Hinum megin, þetta ljósara, er púður sem maður dúmpar yfir til að ná fullkominni þekju yfir baugasvæðið.
Ekki skemmir fyrir að hyljarinn heldur rakastigi húðarinnar í jafnvægi og stuðlar þar með að færri línum (yfirborðsþurrkur í húðinni getur ýtt undir línumyndum, sérstaklega þar sem húðin er viðkvæm eins og á augnsvæðinu).
Mig langar svakalega að prófa þetta, þó ég sé reyndar mjög ánægð með einn sem ég á frá Shiseido - en þetta er snyrtivörusýkin að kalla, alltaf langar mann að prófa nýja dótið!
Ástæðan fyrir því að ég fór að skoða Bobbi Brown vörurnar er að það er kynning í dag og á morgun í Snyrtistofunni Lind á Akureyri, er ekki ótrúlega góð hugmynd að kíkja þangað og skoða?
xoxo
Engin ummæli:
Skrifa ummæli