miðvikudagur, 15. júní 2011

Varir ;*

Hér kemur, eins og ég lofaði, mynd af Politely Pink MAC varalitnum! Ég er búin að nota hann á næstum hverjum degi síðan ég fékk mér hann, finnst hann sko bara betri og betri! Svo mjúk áferð (Lustre finish, það eru nokkur mismunandi “finish” á varalitunum hjá þeim) og hann nærir greinilega varirnar því þær verða aldrei þurrar eða “skorpnar” undan honum.

image

Svo sýndi ég ykkur Victoria’s Secret Lip Balm sem ég keypti fyrir nokkrum vikum og talaði um hvað það væri örugglega flott að nota hann yfir minna glossy varalit. Prófaði hann því yfir þennan:

image

Þið sjáið hvað það munar miklu að hafa svona glært gloss yfir, varirnar virka fyllri og kyssilegri ;)
Svo langaði mig að sýna ykkur einn af mínum uppáhaldsvaralitum; Surprise Rouge Allure frá Chanel. Því miður fékk ég hann á útsölu því hann var að hætta - svo ég tími honum ekkert alltaf! En mér finnst hann mjög flottur og það er ekki að spyrja að gæðunum, Chanel stendur sannarlega fyrir sínu.

image

Svo fyrst ég var að þessu ákvað ég að prófa þennan líka með glossinu:

image

Gaman að prófa svona, ég held að ég eigi enga sérstaklega matta varaliti en það er samt greinilegur munur á þessum með og án glossins. Sjáið hvað smá “touch” getur gert mikið :)

xoxo

Engin ummæli:

Skrifa ummæli