Ó hvað ég vildi óska þess að Smashbox snyrtivörurnar væru fáanlegar hér á landi.
Ef út í það er farið væri ég reyndar til í: Urban Decay, Revlon, Smashbox, Laura Mercier og ýmislegt fleira!
En Smashbox er með svo flottar vörur, ekkert rosalega ódýrar reyndar en drepur ekki veskið. Þeir eru alltaf að koma með eitthvað nýtt. Núna er t.d. komin vorlína sem inniheldur gloss, augnskuggapallettu, eyeliner og kinnaliti. Ef þið fylgið linkinum farið þið inn á forsíðuna og þar sjáið þið nýju línuna strax.
Vonandi fara að koma vorlínur frá fleirum svo maður geti óskað sér…
smashbox.com
Engin ummæli:
Skrifa ummæli