miðvikudagur, 15. júní 2011

Hér koma myndir af léttri dagförðun í mildum litum…

Notaði NN Cosmetics augnskugga í litnum Frappe sem er bronsaður, svartan og svo ljósan sem ég man ekki hvað heitir. Byrjaði á ljósa yfir allt og upp á augnbeinið. Setti Frappe með bursta sem virkar eins og blýantur í laginu, yst við augað og blandaði inn á við. Setti pínkuponsulítið af svarta á sama bursta, gerði eina doppu og blandaði við brúna. Svo er bara að blanda skuggunum saman þar til maður er ánægður með útkomuna.
Lancome augnblýantur, Le Crayon Kohl, gerði ekki línu heldur litaði inn á milli augnháranna svo þau virki þéttari.
Lancome Hypnose Precious Cells maskari. Gleymdi auðvitað að bretta augnhárin (eins og venjulega!)
Dior augnabrúnablýantur.


image
image

Að gera meiri contrast, með flottri eyeliner línu og í fallegum litum er svo hin glæsilegasta árshátíðarförðun!

xoxo

Engin ummæli:

Skrifa ummæli