
Satt að segja sé ég lítinn mun á þessu annars vegar og Black Shatter frá OPI (sem er í færslunni hér fyrir neðan) hins vegar. Þess vegna held ég að það saki ekki að fjárfesta í því ódýrara því að það á hvort sem er ekki að vera fullkomið. Svo nenni ég yfirleitt ekki að vera með svona “kreisí” lúkk í marga daga í röð!
En hrikalega gaman að þeim báðum og ég gleymdi að nefna að liturinn sem ég notaði undir OPI lakkið var The One That Got Away úr Katy Perry línunni, en undir Depend lakkið er ég með From A to Zurich úr Swiss OPI línunni.
Ef þið viljið að þetta endist ykkur daginn verðið þið að muna að nota gott Top Coat yfir - annars fer allt til fjandans eftir skamman tíma;)
xoxo
p.s. ekki gleyma Bjútíboxinu á facebook!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli