miðvikudagur, 15. júní 2011

Gerviaugnhár

Gleðilega stutta vinnuviku :)

Langaði að sýna ykkur uppáhaldsgerviaugnhárin mín:

image

Þau heita Elite og koma 2 pör í pakka. Það þarf að klippa þau í sundur og þá passa þau akkúrat inn að miðju á augnlokinu til að gefa fabjúlöss yfirbragð á hvaða förðun sem er. Þau gera svo mikið án þess að vera OF mikið. Það fylgir lím sem er alveg hreint ágætt og vel nothæft en ef þið eigið Duo lím þá myndi maður nú ekki slá hendinni á móti því!
Munið svo bara að taka þau af og setja þau aftur í boxið og nota þau aftur og aftur - því það er hægt að nota parið allt að 10 sinnum! Mig minnir að þau hafi kostað í kringum 1.500,- krónur, án þess að ég þori að hengja mig upp á það…

Fæst í Airbrush og Make-Up Gallery í Hafnafirði.


xoxo

2 ummæli:

  1. ég mæli með þessum, algjört æði ;)

    SvaraEyða
  2. Elska þau :D
    Gleymdi nú reyndar að taka fram í færslunni að þau eru frá NYX! úpps!

    SvaraEyða