sunnudagur, 3. júlí 2011

Multi Color Manicure

Sá svo sæta liti í Hagkaup frá Alessandro, ákvað að hemja mig og kaupa bara einn! Notaði hann með Chanel 509, Paradoxal.
Mjög sniðugt hjá Alessandro að selja naglalökk í litlum 5 ml glösum - til samanburðar eru OPI venjulegu 13 ml. Burstarnir hjá Alessandro eru reyndar ekki jafn góðir (hef ekki prófað stóru glösin frá þeim) og OPI en fyrir helmingi minni pening sætti ég mig alveg við það :) Sérstaklega af því að þegar maður kaupir svona liti, ekki þessa venjulegu ljósbleiku og -beige liti, þá notar maður sjaldnast alla 13 ml sem eru í OPI glösunum.

Hér eru myndir:

Eintóm gleði og voða gaman að vera með svona mismunandi liti! Mun pottþétt prófa aftur með öðrum litum :)

xoxo

p.s. ekki gleyma gjafaleiknum sem er í færslunni fyrir neðan, ath. að þið verðið að kommenta við þá færslu til að vera í pottinum :)

3 ummæli:

  1. Hvaða naglalakk finnst þér best?, sem flagnar ekki?

    SvaraEyða
  2. Úff erfið spurning Jófríður!

    Einhverra hluta vegna finnst mér flest naglalökk "chippast" eða flagna af, stundum get ég flett heilli nögl af í einu...
    Það er samt greinilegt að verð er ekki aðal"factorinn" í þessu þar sem Chanel lökkin sem ég hef prófað eru ekkert betri en OPI. M.a.s. Depend lökkin eru sum alveg ágæt.

    Ég á mest af OPI lökkum því mér finnst þau á sanngjörnu verði og maður veit að það eru flottir litir og góð lökk.

    Hins vegar þarf ég að finna mér gott Top Coat, ég gafst upp á þeim sem ég á.

    Ég skal koma með færslu bráðlega þar sem ég fer yfir rútínuna þegar ég naglalakka mig, hvað mér finnst virka og hvað ekki :)

    SvaraEyða
  3. ókei kúl kúl, já ég var fyrst bara með depend en mér finnst þau bara ekki þekja nóg vel, það er gaman a leika sér að þeim, en núna er ég farin að kaupa mér OPI því ég elska litina þeirra!

    En endilega :D gaman að fylgjast með þessu hérna :)

    SvaraEyða