fimmtudagur, 14. júlí 2011

Hár-hugleiðingar

Mig er farið að langa að breyta um hárstíl - ekkert klikkað kannski en smá tilbreyting finnst mér alltaf skemmtileg!
Er búin að vera að skoða á netinu og það sem mér líst best á (ef breytingin á ekki að vera róttæk) er svona hliðartoppur eða upp á enskuna "side-swept bangs".

Cameron Diaz er alltaf fín


Fín fín, vil samt ekki alveg svona miklar styttur

Eins og Jennifer er á efri myndinni finnst mér mjööög flott!
Er ekki frá því að ég þurfi að prenta myndina af Jennifer út og sýna hárgreiðsludömunni - svo guggna ég kannski og bið hana bara að særa endana...!

Hvað finnst ykkur? Á maður að breyta reglulega til? Ætti ég kannski að fara aftur í þennan pakka:


xoxo

3 ummæli:

  1. "þennan pakka":
    Og það kemur bara rauð mynd??

    Hvernig pakka væna?

    SvaraEyða
  2. Okey þetta var betra, nú skil ég! hahah ;)

    SvaraEyða