miðvikudagur, 15. júní 2011

Bobbi Brpwn pallettan

Jæja, þá eru 6 litir komnir í pallettuna mína. Ég á meira að segja einn til svo að ég þarf líklega að kaupa mér aðra til að fylla bráðum!
Hér sjáið þið hvernig pallettan lítur út fullbókuð:
image
Er svo ánægð með þessa liti! Efri í miðjunni, Mint, er nýr og ég ætla að prófa hann strax í fyrramálið, held það sé mjög flott að vera með hann yfir lokið og augnblýant pínu “smudge-aðan” við. Efri hægra megin, Gold, er líka nýr og samkvæmt Bobbi Brown síðunni er hann “limited edition” svo mér finnst ég ekkert lítið heppin að hafa eignast hann!
image
Þarna sjáið þið svo hvernig litirnir koma út á húðinni. Þetta er kallað swatch á erlendum förðunarbloggum, allar hugmyndir að góðu orði til að kalla þetta eru vel þegnar!
Neðsti liturinn, Sapphire, komst ekki fyrir í pallettunni, greyið. Mér finnst þessi mynd ekki alveg gefa honum nógu góð skil, en hann er með aðeins meira glitrandi áferð. Svakalega flottur litur! Hlakka til að prufa og sýna ykkur útkomuna.
Smá tips: Bobbi Brown augnskuggarnir eru þannig að maður þarf að byggja litinn upp, ef maður setur eina umferð þá kemur ekki mikill litur, en ef maður dúmpar yfir og blandar og byggir upp þá kemur gífurlega falleg áferð og litur.
xoxo

Engin ummæli:

Skrifa ummæli