miðvikudagur, 15. júní 2011

Black Shatter

Nú er Katy Perry línan LOKSINS komin og ég dreif mig að fjárfesta í Black Shatter. Var reyndar svo séð að kaupa hann og gefa systur minni í afmælisgjöf og fékk svo að prófa hjá henni ;)

image

Mér finnst þetta koma hrikalega skemmtilega út en ég hefði átt að setja tvær umferðir af litnum og svo shatterið yfir, því svarti dregur litinn greinilega aðeins út.

Var í apótekinu áðan og sá að Depend (ódýru lökkin) eru líka með svona en hjá þeim heitir það Crackle effect og kemur í mörgum litum! Það kostaði bara 420 kall svo ég splæsti og hlakka til að prófa - set mynd um leið og það er orðið þurrt ;)

xoxo

Engin ummæli:

Skrifa ummæli