miðvikudagur, 15. júní 2011

Þín eigin boutique!

Var að skoða bloggið hjá henni Coco Rocha (sem er módel) og uppgötvaði þessa síðu! Algjör snilld, maður getur valið hvað manni líkar og síðan finnur föt á mann. Svo gerir maður love/hate á fötin sem koma upp og þá þrengir það alltaf hvað síðan kemur með næst. Svo hún fer að “þekkja” mann. Voða gaman, nema það er allt svo dýrt þarna (svo mikið af merkjavöru) svo ég get bara látið mig dreyma!
Maður getur svo “follow-að” eða fylgst með hvað aðrir eru að velja sér, svo þetta er svona svipað og twitter ef þið þekkið það.
Þið búið ykkur til “boutique” og fylgið nokkrum einföldum skrefum til að fullkomna dæmið.
Prófið! Þetta er voða gaman fyrir verslunarfíkla!
p.s. það er hægt að kommenta á færslur (var að koma því inn!) með því að ýta á umslagið hérna til hliðar.
:)
p.s2. sá að nudemagazine.is var að blogga um boutiques.com líka! Greinilegt að hlutir ferðast hratt á netinu!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli