miðvikudagur, 15. júní 2011

Hypnose - Lancome

image

Hypnose er löngu orðið þekkt nafn hjá Lancome. Þeir byrjuðu, ef mér skjátlast ekki, með ilmvatnið sem er enn þann dag í dag eitt það vinsælasta í Frakklandi. Ég er ekki alveg með á hreinu hvort eitthvað fleira er komið með Hypnose nafninu, en maskararnir eru allavega að gera það svakalega gott! Þessi í miðjunni er sá fyrsti. Hypnose. Þeir lýsa honum þannig að þú getir ráðið hversu mikil augnhár þú vilt hafa, e. “Custom Wear Volume”. Mjög hentugt til að geta pile-að honum á fyrir djammið en haft hann einfaldan og léttan á daginn. Þeir segja líka að maður geti sett fleiri umferðir ofan á hvenær sem er dags eftir fyrstu umferðina, en mér finnst það reyndar ekki flott. Sama hversu góður maskarinn er, finnst mér (hingað til allavega) aldrei fallegt að bæta ofan á þurran maskara. Verður eiginlega alltaf klessulegt.
En maskarinn sjálfur stendur alltaf fyrir sínu!
Hypnose Drama, hægra megin. Hann kom næstur og er með öðruvísi bursta, sem býður upp á meiri sveigju og stjórn. Mér finnst burstinn mjög góður. Eina sem ég hef út á þennan að setja er að mér finnst ég þurfa að skafa af burstanum til að fá ekki klessulegt lúkk. Hinsvegar, ef ég geri það, kemur hann mjög vel út og ég get haft hann eins þykkan og ég vil - án þess að klessast.
Hypnose Precious Cells, vinstra megin. Oft kallaður Juliu Roberts maskarinn því hún var í auglýsingunni. Þessum lýsa þeir sem hinum upprunalega Hypnose maskara, plús efni sem eykur hárvöxt. Snilld fyrir þær sem eru með léleg/fá/stutt augnhár, því hann styrkir þau sem fyrir eru auk þess að bæta vöxt þeirra sem eru á leiðinni.
Ég hef heyrt gott af honum en á eftir að sjá það sjálf, enda bara búin að nota hann í nokkra daga. Maður á að sjá mun eftir 30 daga.
Maskarinn finnst mér samt ekki beint líkur Hypnose, því áferðin er léttari og mér finnst ég ekki ná að þykkja augnhárin neitt. En hann má eiga að burstinn greiðir vel úr og gefur mjög flott, löng augnhár. Persónulega myndi ég ekki nota hann á djammið eða þegar ég vil meira “effect”, heldur meira þegar ég fer í vinnu og vil vera lítið máluð.
Vona að þið hafið lært aðeins um þessa flottu maskara - ég læt ykkur svo vita eftir 30 daga hvernig gekk með Hypnose Precious Cells!
xoxo
p.s. Mig langar rosalega að fá hugmyndir frá ykkur, hverju þið viljið sjá meira af? :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli