Litirnir sem ég notaði voru sem sagt Mint, Sapphire og Bone á augun.
Ég var með Lancome Teint Miracle á mér frá því í dag, bætti smá á og skyggði með NYX púðri í litnum Tawny. Svo er ég með Dior augnabrúnablýant sem heitir Crayon Poudre de Sourcils.
Í morgun henti ég á mig Mint yfir augnlokið og setti smá línu af Lancome Crayon Kohl svörtum augnblýanti. Það leit ca. svona út:

Er líka með Lancome Hypnose maskara og NYX gloss í litnum Smokey Look.
Eins og sést þarf ég að fara að muna að bretta augnhárin mín!
Segjum sem svo að ég ætlaði að kíkja út í kvöld, þá myndi ég vilja hressa upp á förðunina.
Ég bætti því við BB Sapphire á ytri helming augnlokanna og blandaði litnum inn á lokin. Svo setti ég smá Bone alveg upp að augabrúnum til að má út skilin.
Ég skyggði aðeins meira með NYX púðrinu.


Liturinn á neðri myndinni er hræðilegur, ég veit, en þar sést best hvernig ég blandaði bláa inn á lokið en hélt honum samt utarlega.
Svona er gaman að leika sér með liti og mér fannst þessir tveir koma mjög vel út saman. Ef þið eruð í stuði er jafnvel sniðugt að bæta við þykkri eyeliner línu og auka aðeins á maskarann.
Þá er maður good to go á fimmtudagsdjammið!
xoxo
Engin ummæli:
Skrifa ummæli