miðvikudagur, 15. júní 2011

Katy Perry + OPI

Þau eru voðalega dugleg að koma með nýtt þarna hjá OPI, á leiðinni til landsins er m.a. þessi lína sem Katy Perry er í forsvari fyrir:
image
Svakaflottir glamúrlitir, akkúrat eitthvað sem ég sé fyrir mér að hún fíli! Þau hafa líka bætt Black Shatter litnum (þessum sem gerir sprungur) í línuna, en það gefur smá auka að hafa ekki BARA litina.
image
Finnst þessi þriðji frá vinstri flottastur!
Ég vona að það komi svona mini-pakki með litunum saman á góðu verði, þá getur maður prófað alla en þarf ekki að blæða í stór glös ;)
xoxo

Engin ummæli:

Skrifa ummæli