
Þessi heitir Ultra Pearl Mania og er heldur meiri litur í þeim heldur en neðri. UPM er það sem þeir kalla “highly pigmented” sem þýðir að það er mikið af litakornum í honum og þarf minna í einu til að framkalla mikinn lit. (Við viljum oftast að t.d. augnskuggar séu “highly pigmented”.)
Það er flott að dusta smá af þessum yfir allt lokið ef þið viljið smá fjólubláan ljóma, t.d. er það mjög flott yfir gráan augnskugga.

Þessi heitir Chrome Eyeshadow en þeir eru reyndar komnir í nýjar umbúðir og heita Dramatic Chromatic Eyeshadow Pigment! Þeir gefa líka góðan lit, en þennan er mjög flott að nota undir augabrúnir og í innri horn augnanna til að stækka þau. Ef ykkur finnst þið setja of dökkt innarlega á augun er ekkert mál að redda sér með honum(hann heitir Oatmeal), dúmpa bara létt þríhyrningslaga yfir, eins og svona > og inn í þríhyrninginn. Svo er tilvalið að blanda það aðeins inn á dekkri skuggann, ekki láta skilin vera of skörp. Verið duglegar að prófa eitthvað nýtt!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli