Tók þetta af gömlu bloggsíðunni minni - vona að þetta hjálpi einhverjum!
- Þrífið gamla maskaragreiðu og notið hana til að halda augabrúnum á sínum stað. Ef þær eru mjög óhlýðnar getið þið spreyjað hárspreyi í greiðuna áður en þið greiðið yfir og brúnirnar verða pikkfastar!
- Ef þið klínið maskara á augnlok eða kinnar, ekki reyna að þrífa hann strax af. Þá klínist hann bara út um allt. Klárið frekar förðunina, takið svo þurran eyrnapinna og strjúkið af. Þá hálfbrotnar þornaði maskarinn í burtu.
- Þegar þið setjið fallegan varalit á ykkur er gott að hafa hyljara við höndina því ef maður klínir út fyrir varirnar er oft erfitt að ná litnum alveg í burtu. Svo ekki nudda þangað til húðin verður rauð, dúmpið frekar létt með hyljarabursta. (Best er að hafa varablýant þegar þið notið varalit því það kemur í veg fyrir að varaliturinn “blæði” út fyrir. Getið séð í færslunni Varir varir varir að ég notaði ekki varablýant og það koma smáar línur út frá vörunum - sem hefði ekki gerst hefði ég haft varablýant!)
- Eyeliner er flottastur ef hann er alveg upp við augnhárin. Til að láta augnhárin virka þéttari, litið á milli þeirra með augnblýanti. Síðan er hægt að gera fína eða þykka línu, allt eftir tilefni og vilja.
- Munið að nota hyljara í kringum nefið, það svæði gleymist oft og verður rautt í “hita leiksins”:)
- Ekki gera svarta línu alveg í kringum augun ef þið eruð með lítil augu. Gerið heila línu uppi en látið hana aðeins ná inn að miðju við neðri augnhárin. Flottast er að láta hana “fade-a” út inn að miðju.
Munið svo að ekkert er bannað og alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt! xoxo
Engin ummæli:
Skrifa ummæli