miðvikudagur, 22. júní 2011

Litaprufur

Langaði að sýna ykkur litaprufur úr nokkrum NYX pallettum, þær eru til í öllum regnbogans litum. Þessar sem ég er með hér eru þriggja lita og henta vel ef mann langar í smá dýpt í förðunina, ljós litur yfir allt, mið til að skyggja og dekksti til að fá enn meiri dýpt eða jafnvel setja sem eyelinerlínu.

 Þessi er sú mest notaða hjá mér! Sahara, hinn fullkomni highlighter litur, hægt að nota hann til að dusta létt yfir fyrir ofan kinnbeinin til að gefa flott "glow".

 Þessa fallegu grænu er hægt að nota á ýmsa vegu, litina sér eða saman.

 Þetta er hin fullkomna "brúðar"palletta, svoooo fallegir litir! Hengi mig svo sem ekki upp á það en þessa liti geta allir verið með, hrikalega flottir.

Svo erum við með hina ómissandi hvítu-gráu-svörtu pallettu, litirnir heita þessum líka frumlegu nöfnum ;)

Ég notaði NN Cosmetics augnskuggagrunn undir brúnu og svörtu pallettuna en NYX Jumbo hvítan undir hinar tvær. 

Eigið þið einhverjar NYX pallettur? Hverja mynduð þið vilja eiga af þessum?

xoxo

4 ummæli:

  1. Langar í allar! annars örugglega grænu, en samt allar ;)

    SvaraEyða
  2. Vá þær eru allar flottar :-) Mig langar mest í efstu og næstneðstu.

    SvaraEyða
  3. Þær eru nefnilega mjög skemmtilegar. Getið líka farið inn á nyxcosmetics.com og skoðað allt úrvalið, hrikalega flott!

    SvaraEyða
  4. Þessa efstu og neðstu.
    Alltaf í sömu litunum, heh :)

    SvaraEyða