miðvikudagur, 4. janúar 2012

Dagförðun með Naked

Ég nota Naked pallettuna mest í léttar dagfarðanir sem henta alltaf. Þeim er líka auðvelt að breyta og bæta við t.d. eyeliner eða dekkja skyggingarnar til að breyta frá degi til kvölds.


 Þessi er í þeim dúr sem ég geri oftast og nota aðeins tvo liti. Ég nota samt yfirleitt alltaf augnskuggagrunn. Þarna set ég ljósan lit (í þessu tilviki þann sem heitir Naked í pallettunni) yfir allt og skyggi svo yst með dekkri lit. Passa bara að blanda vel :)


Þarna gerði ég meiri skyggingu með sanseruðu litunum, Sin og ég man ekki hvaða dökki litur þetta var... En svo nota ég mjóan bursta í dökkasta litinn í pallettunni til að gera örmjóa línu meðfram augnhárunum.



Úpps, ekki alveg í fókus...þarna er ég með einn lit yfir lokið og bara pínuponsulitla skyggingu yst með sanseruðum lit, og eins; örmjóa línu með dökkum lit.


Svona er hægt að breyta pínu til og skemmta sér á hverjum degi þó maður sé með fáa liti og lítinn tíma - fyrstu skiptin taka kannski aðeins lengri tíma en svo kemst maður upp á lagið með það :)

xoxo

Engin ummæli:

Skrifa ummæli