Jæja dömur - eitt af því sem setur mestan svip á andlitið okkar eru augnabrúnirnar.
Ég talaði um í ráði vikunnar núna á mánudaginn að reyna að lita hárin ekki of dökk, einum til tveimur litum dekkri en háraliturinn þinn er venjulega nóg til að setja svip.
Persónulega fer ég í plokkun og litun og lita mig svo sjálf inn á milli, með hinum klassíska Refectocil lit sem maður fær í apótekinu. Ég nota alltaf brúnan en mér finnst hann meira að segja einum of dökkur fyrir mig svo ég ætla að athuga hvort það sé ekki til ljósbrúnn lika og prófa hann næst. Hárin mín eru mjög ljós og ég verð gjörsamlega andlitslaus þegar ég læt líða of langt á milli litana.
Til að redda mér inn á milli nota ég augnabrúnablýant (frá Dior, mjög góður), augnskugga (brúnan og skáskorinn bursta með) eða augnabrúnatúss (frá nn Cosmetics, helst svakalega vel) til að fylla inn í. Brúnirnar mínar eru gisnar fremst svo ég móta þær alltaf líka.
Ef þið viljið lita og plokka sjálfar verðið þið bara að passa að falla ekki í þá gryfju að plokka of mikið. Takið mest yst þar sem brúnin endar, ekki taka ofan af brúninni, og reynið að taka ekki framan af því þá missir brúnin sína náttúrulegu lögun.
Munið svo að það er í tísku að vera með náttúrulega þykkar og miklar en vel snyrtar brúnir, svo ég endurtek: Plís ekki plokka of mikið.
Þegar þið mótið hana getið þið svo stuðst við þessa mynd:
Ef þið miðið við nefið á ykkur á að vera bein lína upp að fremsta parti brúnarinnar. Bein lína meðfram augasteininum að efsta partinum og bein lína meðfram ytra horni augans og að enda augabrúnarinnar. Þetta þarf auðvitað ekki að vera upp á millimetra, þetta er meira hugsað sem stuðningur svo maður hafi einhverskonar viðmið.
Gangi ykkur vel!
xoxo
Engin ummæli:
Skrifa ummæli