Mér finnst - á tyllidögum - rosalega gott að nota primer, eða undirfarða, undir meikið mitt. Primer gerir það að verkum að farðinn verður áferðafallegri, hann fyllir upp í húðholur og ýmist mattar eða gefur húðinni ljóma - allt eftir virkni hans.
Til eru margir mismunandi primerar og ég ætla að stikla á stóru og sýna ykkur þrjá sem ég veit að hafa gefið góða raun.
Fyrstan vil ég nefna Clarins Beauty Flash Balm. Hann er vinsæll út um allan heim og ég bara varð að eignast hann eftir að ég las nokkrar umfjallanir um hann.
Ég er svo ánægð með hann því hann gerir nákvæmlega það sem stendur að hann geri. Hann er öðruvísi en flestir primerar á þann hátt að hann er meira eins og krem - en flestir primerar eru gelkenndir. Það stendur "brightens, tightens" sem myndi útleggjast á íslensku "birtir, þéttir" og ég get svo svarið að hann gerir einmitt það! Ég nota alltaf rakavatn á andlitið kvölds og morgna og þarf ekki að setja á mig dagkrem ef ég nota þennan primer. Hann fyllir vel upp í línur og gerir húðina alveg gallalausa. Þó hann eigi að gefa smá ljóma á hann jafnt að henta feitri sem þurri húð og það er alls ekki eins og húðin glansi.
Hann gefur líka bringu og hálsi mjög fallega áferð svo endilega spreðið smá og berið aðeins neðar en á höku :)
Þá er það Lancome La Base Pro. Hann er gelkenndur og frekar þykkur. Hentar öllum húðtýpum.
Þennan er ég búin að eiga frekar lengi og var fyrsti primerinn sem ég prófaði. Hann á að henta öllum húðtýpum en ef maður er með mjög þurra húð myndi ég ekki endilega mæla með honum. Hann er olíulaus svo hann stíflar ekki húðholur. Þennan þarf alveg 100% alltaf að nota rakakrem undir.
Hann fyllir vel upp í húðholurnar (án þess að stífla eins og ég nefndi því hann er olíulaus) og mattar húðina.
Mjög fínn primer.
Svo er það YSL Matt Touch Primer. Þessi er alveg í guðatölu hjá þeim sem eru með feita húð.
Þessi er, eins og Lancome primerinn, olíulaus, það er aðeins léttari áferð á honum en Lancome. Hann er hvítur og aðeins kremkenndari en samt gelaður (það er orð!).
Mæli með honum fyrir þær sem glansa mikið og eru með feita húð! Jafnar húðina og heldur henni mattri - eins og nafnið gefur til kynna!
Endilega deilið ef það eru einhverjir sem þið hafið prófað og elskað/hatað (við viljum samt bara ást á þessari síðu ;p)
xoxo
hvað kostar svonaaa ? :)
SvaraEyðaHmm þeir eru frekar dýrir en endast líka lengi - sérstaklega af því flestir nota þá ekki daglega - og af því að maður þarf mjög, mjög lítið í einu. En þeir eru held ég frá ca. 4-6þús, fer eftir því hvernig. Clarins var minnir mig á 4.500,-
SvaraEyðaJeyjj annað íslenskt Bjútýblogg ! HÆ ;)
SvaraEyðaNei en gaman! :D Hæ! ;)
SvaraEyðaÉg hef verið að nota þennan frá Clarins í marga mánuði - hann endist að eilífu og ég elskaelskaelska hann! :)
SvaraEyðaAnnars langar mig mjög að prófa þennan frá YSL næst :)
Flott blogg!
Ninna