Þið kannist kannski við að eiga nokkra varaliti og nennið kannski ekki að muna nöfnin á þeim öllum, né opna hvern og einn til að finna þann eina rétta við dress kvöldsins. Þá er ég með lausn handa ykkur (þá meina ég ekki að ég hafi fundið upp á þessu sjálf, hef séð ýmsa youtube-gúrúa gera þetta;p)!
Búið til ykkar eigin varalitapallettu!
Það sem þið þurfið til verksins:
Varalitir heimilisins - best er að raða þeim strax í þá röð sem þið viljið, hvort sem það er eftir lit, gerð eða áferð |
Palletta undir skemmtilegheitin; ég notaði MAC 15 lita pallettu en það væri sniðugt að nota 4 lita pallettu eða hversu stóra sem þið finnið og ykkur finnst passleg. |
Borð, skeið og einhverskonar spaða (ég notaði naglasnyrtispaða), kerti, pappír, blað og penna. |
Þá eruði tilbúnar.
Fyrsta skref er að raða litunum upp eins og þið viljið hafa þá í pallettunni. Ég raðaði þeim svona ca. eftir lit en þið gætuð líka gert eftir merki (NYX, MAC, Bobbi Brown o.s.frv.) eða áferð (matt, satín, glimmer o.s.frv.)
Fyrsta skref er að raða litunum upp eins og þið viljið hafa þá í pallettunni. Ég raðaði þeim svona ca. eftir lit en þið gætuð líka gert eftir merki (NYX, MAC, Bobbi Brown o.s.frv.) eða áferð (matt, satín, glimmer o.s.frv.)
Þá takið þið áhöldin og passið að þau séu alveg hrein. Gerið línu í fyrsta varalitinn með spaðanum (best er að hafa spaðann sem grennstan) allan hringinn. Þá getið þið brotið hann af og lagt hann í skeiðina. Ég notaði ekki alveg allan varalitinn í hvert skipti, heldur skildi eftir ca. 5-10 mm eftir. Ef ég notaði meira fór að fljóta út fyrir mótið - en það fer líka eftir því hversu stórt mótið er. Byrjið samt frekar á að taka lítið og bræðið þá meira ef það er pláss í mótinu.
Svo haldið þið skeiðinni fyrir ofan kertið og sjáið nánast strax að varaliturinn fer að bráðna. Þegar hann hefur allur bráðnað er komið að því að hella í mótið. Þetta er pínu "tricky" en ég klúðraði samt bara einu sinni, þá notaði ég spaðann til að redda mér og skafa ofan af varalitunum sem ég hellti óvart ofan á!
Þá er ekkert eftir nema að þurrka af skeiðinni og spaðanum og byrja á næsta lit! Passið bara að þurrka neðan af skeiðinni líka, hún verður væntanlega sótsvört.
Þegar allt er komið í (og þið skrifuðuð röðina á litunum á blaðið ykkar með pennanum, er það ekki?:)) Getið þið notað lokið af pallettunni til að líma litla merkimiða í með gerð og heiti/númeri á lit. Þá vitið þið alltaf hvar þið getið nálgast annan ef þið klárið ykkar.
Hér er svo útkoman:
Litirnir sjást því miður ekki vel - t.d. er þessi efsti fyrir miðju ELDrauður en ekki svona bleikur. Þessi neðsti næstlengst til vinstri er líka ekki svona ljótur, hehe! |
Ég er ótrúlega ánægð með þetta og svo verður yndislega þægilegt að ferðast með þetta í stað 15 varalita sem eru allir mismunandi að stærð og gerð!
Snilld!
xoxo
Rosalega er þetta sniðugt...
SvaraEyðaKveðja Freyja
OMG þetta er svo magnað. Svekk að ég á bara 1 varalit, held það taki sig ekki að bræða hann í form:) kv, Fanney
SvaraEyðaHehe, nei Fanney þá held ég að það sé auðveldara að hafa hann bara stakan í veskinu ;)
SvaraEyða