Eins og ég talaði um í haust-trendafærslunni verða dökkir varalitir mikið sjáanlegir í haust. Blóðrauðir, vínrauðir, brúnleitir og allt þar fram eftir götunum. En auk þess er gaman að vera með skæra liti á veturnar (eða það finnst mér allavega) svona til að vega upp á móti öllu myrkrinu!
Ég tók því til nokkra varaliti sem mér finnst skemmtilegir fyrir veturinn, annars vegar dökka og hins vegar orange-tónaða skærari liti.
Efsti liturinn, MAC Viva Glam I, er mattur og rosalega fallegur. Nirvana er alls ekki jafn dökkur og hann lítur út fyrir að vera í umbúðunum, en hann er með smá sanseringu eins og síðasti liturinn, MAC Viva Glam V.
Þessir fjórir eru allir með sanseringu - Flirt er hrikalega flottur orange-bleikur, Jamaica er ekki alveg jafn appelsínugulur og Ravishing og Micro Bisque er aðeins meira bleik-brúnn.
Allt flottir litir sem hægt er að útfæra við ýmis tilefni :) Þessir ljósari eru nú aðeins meira hversdags-friendly en hinir dekkri flottir til að toppa flott outfit eða ef maður nennir ekki að mála sig mikið!
xoxo
Engin ummæli:
Skrifa ummæli