Síðan heitir sem sagt Our Best Bites og er algjör snilld... Mæli hiklaust með að þið flettið í gegn.
Ég er ekki mikið "hollustufrík" svo ég tek bara það sem mér sýnist vera gott og það hefur sko slegið í gegn heima hjá mér. Fyrst voru það geggjaðar "chewy" súkkulaðibitakökur, nú eru það lungnamjúkir, himneskir kanelsnúðar, sem meira að segja aular eins og ég geta bakað. Svo eru það þessar... þær skulu verða gerðar, einn góðan veðurdag... Hriiiiiiikalega girnilegar.
Hér er uppskriftin að kanelsnúðunum, og ég mæli með að þið lesið í gegnum allan textann og fáið vatn í munninn við að skoða myndirnar, en takið líka vel eftir leiðbeiningunum á milli myndanna. Þar leynast nefnilega bestu leiðbeiningarnar.
Ef ég væri þið myndi ég ekkert bíða eftir næsta sunnudegi, heldur skella í þessa strax í dag! ;)
xoxo
p.s. Næst á dagskrá er svo smá sýnishorn af Volare förðunarvörum sem ég var svo heppin að fá að prófa.
annað p.s. Endilega munið eftir gjafaleiknum sem er enn í gangi, þegar það verða komin 350 like á Bjútíboxið á Facebook dreg ég út fallegu 20 lita augnskuggapallettuna.
Virkilega girnilegar súkkulaðibitakökur! Voru þær jafn góðar og þær líta út fyrir að vera ? ;)
SvaraEyðaAllavega svo góðar að Óli fór að selja þær upp í golfskála í sumar ;)
SvaraEyðaokey þá verð ég að prófa þær við tækifæri! hehe ;)
SvaraEyða