laugardagur, 12. nóvember 2011

Volare förðunarvörur

Ég var svo heppin að fá að prófa Volare förðunarlínuna núna um daginn, myndavélin mín var ekki beint vinur minn svo ég náði því miður ekki almennilegum myndum af förðunum sem ég gerði með vörunum. Í línunni eru meik, púður, sólarpúður, augnskuggar, augnblýantar, blautir eyelinerar, varalitir, glossar; sem sagt allur pakkinn!

Ég er mjög hrifin af varalitunum, þeir endast vel og lengi og það voru að koma mjög flottir litir. Ég veit ekki alveg hverjir nýju litirnir voru en ég var hrifnust af þessum:


Geggjaðir haustlitir númer 1 og 3, báðir mattir, hinir tveir eru sanseraðir.



Svo eru þessir tveir sanseraðir og glossin ótrúlega flott, mjúk og glansandi :)


Eins og ég sagði var myndavélin ekki vinur minn þegar ég var að reyna að taka myndir af förðunum, en ég náði samt ágætum myndum af tveimur duo-augnskuggum. Þeir koma sem sagt allir tveir og tveir saman; svartur og grár, grænn og ljósgrænn, blár og ljósblár, sinnepsgulur og rústrauður og margir fleiri. Mjög flottar samsetningar. Það sem mér fannst með augnskuggana var að það er algjört möst að nota einhverskonar grunn undir, t.d. augnskuggagrunninn frá NN Cosmetics, Paint Pot frá MAC eða grunn frá Urban Decay. 





Ég á sjálf græna duo-ið og lofa að þegar myndavélin mín þýðist mig skal ég reyna að taka góða mynd af förðun með því :)

Ef þið viljið prófa Volare vörurnar er það hún Valdís Anna sem er algjör sérfræðingur og snillingur, hún er með Facebook síðu :)





5 ummæli:

  1. Má ég vera með í Facebook leiknum ykkar?

    SvaraEyða
  2. Að sjálfsögðu! Þú ert með í pallettu-útdrættinum ef þú kommentar við þessa færslu: http://bjutiboxid.blogspot.com/2011/09/gjafaleikur-i-samstarfi-vi-nn-cosmetics.html :) Mundu bara að setja nafn undir svo ég geti tilkynnt sigurvegarann á Facebook, og email ef þú ert ekki með Facebook :)

    SvaraEyða
  3. Vá hvað neðri augnskugginn er flottur!

    SvaraEyða
  4. Þú mættir alveg bæta við hvar þú kaupir hlutina sem þú talar um :) En varalitirnir virka æðislegir!

    SvaraEyða
  5. Já Hulda, hún Valdís Anna sem ég setti link inn á facebookið hjá er að selja Volare, þessar vörur eru bara seldar í heimakynningum :)
    En ég skal reyna að muna það framvegis ;)

    SvaraEyða