Ég veit að ég lofa alltaf bót og betrun en ég hef ósköp lítið prófað nýtt upp á síðkastið, förðunarlega séð...
Ákvað því að sýna ykkur það sem er á leiðinni til mín frá asos.com! Það er mid-season útsala hjá þeim, endilega nýtið ykkur það, fullt af flottum fötum og fylgihlutum á góðu verði og enginn sendingarkostnaður! Munið bara að reikna með tolli + vsk :)
Keypti þennan myntugræna jakka, fannst hann svo fínn og sumarlegur! Auðvelt að dressa hann upp eða niður, verður flottur við gallabuxur en líka djammdressið :)
Þessi er alveg plein að framan, væri flott að vera með eitthvað statement hálsmen við og passa að vera í honum þegar það er nógu heitt til að maður þurfi ekki að vera í jakka svo bakið sjáist :)
Þessi kaup gerðu þriðjudaginn minn aðeins bjartari!
Hér er pinterestið mitt, svona ef þið eruð farnar að tékka á því, það er svo skemmtilegt!
xoxo
þú verður þvílík gella í þessum kjól :)
SvaraEyðaHehe, það er sko eins gott ;)
SvaraEyðaKannski hann verði kominn fyrir starfsdaginn... ;)
SvaraEyðaúúúúúúúúú, það væri ekki slæmt :)
SvaraEyða