miðvikudagur, 23. maí 2012

Meira frá asos.com :)

Fann nokkur goodies á asos.com í gær... Er búin að vera ótrúlega dugleg að spara en svo þurfti ég að hjálpa systur minni að finna sér skó og þá brotnaði ég ;)

Hingað komið er allt þetta á undir 20 þús sem mér finnst bara mjög gott! Er búið að langa svo lengi í svona Rose Gold úr frá Michael Kors... En það er nokkrum tugum þúsundum dýrara svo ég er himinlifandi með þetta í staðinn!

Fyrst ég er búin að vera svona löt í förðunarbloggum upp á síðkastið ætla ég að reyna að finna "andann" með að blogga um það sem mér dettur í hug; föt, skartgripir, tíska, matur, eitthvað sniðugt sem ég finn á Pinterest... ;)

xoxo

2 ummæli:

  1. borgaru toll og virðisaukaskatt af vörunum ?

    SvaraEyða
  2. Já, venjulega margfalda ég með 1,355 (25,5% vsk og 10% tollur) og bæti við 600 kr í tollskoðunargjald.

    SvaraEyða