þriðjudagur, 12. júlí 2011

Ráð vikunnar 11. júlí

úpps það er kominn 12. júlí, sorrý sorrý, þetta átti að koma inn í gærkvöldi!

En ráð vikunnar er:

Til að fá léttari áferð á húðinni á heitum sumardögum (jei það er komið sumar), blandið einni pumpu af farðanum ykkar við dagkremið sem þið notið.

Svo berið þið það á með puttunum, bursta eða svampi, alveg eins og þið mynduð annars gera, en áferðin er léttari og þekur ekki jafn mikið. Þetta er líka gott ráð ef ykkur finnst farðinn ykkar vera of þykkur eða of þekjandi.

xoxo

2 ummæli:

  1. Þetta er mjög sniðugt! - maður er að búa til sitt eigið litaða dagkrem :)

    Flott blogg hér á ferð.

    SvaraEyða