laugardagur, 13. ágúst 2011

Naglalakk dagsins

Ég fór í voðalega fína handsnyrtingu í fríinu mínu, fékk gelnaglalakk á neglurnar og var svaka skvísa. Fannst það ótrúlega sniðugt þar til það fór að flagna af... Þá kom í ljós að ef maður er óþolinmóður eins og ég og rífur gelnaglalakk af í bílnum því maður nennir ekki að bíða eftir að komast heim í acetone, verða neglurnar ekkert sérlega fallegar. Ég skellti því á mig OPI strengthening lakki þegar ég kom heim, svo þessu fallega ofan á:

China Glaze Papaya Punch
Mér finnst þessi mynd ekki alveg gefa því nógu góð skil, það er appelsínugulara! En ég er voða ánægð með litinn og myndi taka mynd ef neglurnar mínar væru aðeins betur farnar. Því þó að liturinn feli mesta ljótleikann eru þær samt svo hrjúfar að það sést í gegn. 

Ég fjárfesti líka í þessari snilld í fríinu: 

Hef endalaust séð youtube og make-up bloggara tala um þetta Seche Vite - Dry Fast Top Coat. Keypti sem betur fer tvö því þetta er algjör snilld! Neglurnar urðu miklu yfirborðsfallegri og þornuðu á nokkrum mínútum, gat meira að segja skipt um föt nokkrum mínútum seinna án þessa að það klesstist allt. Gef þessu 10!

xoxo og húrra fyrir góðum vörum!

2 ummæli:

  1. Fæst þetta Seche Vite a Islandi?

    SvaraEyða
  2. Nei því miður :( En þú gætir pantað það af erlendum síðum.
    T.d. sendir www.feelunique.com til Íslands, sé að það fæst þar.
    http://www.beautybay.com/cosmetics/sechevite/g/dryfasttopcoat/?gclid=CNDh8_nB0aoCFQEf4Qod2Qi7zA Hér fæst það líka :)

    SvaraEyða