Þegar maður opnar blasir dýrðin við manni, tólf augnskuggar, hver öðrum fallegri. Svo fylgir líka bursti með sem er 100% vegan (=engin dýrahár í honum).
Virgin, Sin, Naked, Sidecar |
Buck, Half Baked, Smog, Darkhorse |
Toasted, Hustle, Creep, Gunmetal |
Hér eru þeir í sömu röð og ég taldi upp hér að ofan. |
Allt saman hrikalega fallegir litir, maður er með allan skalann þarna. Highlight og "yfir-allt" liti, skyggingaliti og eyeliner.
Fyrstu litirnir eru fallegir fyrir grunn og highlight. Buck litinn er ég búin að vera að nota til að lita inn í augabrúnirnar á mér, mjög góður litur í það.
Því miður var ljósið ekki betra en svo þegar ég tók mynd að það afbakaði alveg litina Half Baked og Smog, þeir eru mjög glimmeraðir og flottir. Half Baked er gullinn en Smog aðeins meira "rusty". Þeir eru mjög flottir í skyggingar. Síðustu litirnir eru geggjaðir til að nota í eyelinerlínu, til að auka skyggingar eða gera smokey.
Ég mun koma til með að sýna ykkur lúkk gerð með þessari pallettu, það er sko hægt að leika sér endalaust með svona liti. Smokey, létta dagförðun, fallega kvöldförðun fyrir árshátíð eða brúðkaup, hvað sem er!
xoxo
Sæl,
SvaraEyðaHvar keyptur palíettuna. Sjálf er ég búin að vera að leita geðveikt lengi að þessu :)
-Steinunn
Hæhæ, ég keypti hana í Ulta í Bandaríkjunum. :)
SvaraEyðabestu kaup sem ég hef gert! ætla að kaupa aðra næst þegar ég fer út bara til að eiga til vara :)
SvaraEyðaHehe! Já ég er ekkert smá ánægð og er bara rétt að byrja með mína ;)
SvaraEyðaoh hvað ég öfunda þig aað hafa fundið þessa pallettu, ég leitaði af henni utum allt í NY
SvaraEyðaoh elska þessa palettu keypti hana af beautybay.com og hún er æði ! ætla að kaupa auka þegar ég fer næst til USA ..
SvaraEyða