sunnudagur, 11. september 2011

Þorum við í haust-trendin...

Jæja fannst tími kominn til að sýna ykkur smá hvað verður heitt núna í haust og vetur... skv. tískublöðum og tískupöllum.

Náttúrulegt er gott, falleg húð, miklar augabrúnir og bara smá maskari og kinnalitur til að gera effect.

Dökkar varir eru málið í haust, þennan lit er ég alveg að fíla. Svo eru það augnhárin, þau eiga að vera... bíðiði... KLESST! Hvað er það, spyr maður sig, nú er maður alltaf að reyna að finna hinn fullkomna maskara sem klessir ekki augnhárin - enda á maður sko að búa til hinar fullkomnu klessur, hvorki meira né minna. Ég held að ég falli ekki fyrir þessu trendi... mér finnst eiginlega fátt ljótara en klesst augnhár. Hvað finnst ykkur?

Metallic smokey augnförðun verður vinsæl, með alls konar litum og í alls konar útfærslum. Við þessar venjulegu myndum kannski ekki útfæra það svona alveg upp á augabrún - en engu að síður verður gaman að leika sér með þetta trend.

Þykkur eyeliner. Þarf ég að segja meira?

Jæja, hvað finnst ykkur?

xoxo

5 ummæli:

  1. ég er nú bara á sama máli og þú, finnst klestur maskari vibbi, smokey á ekki að ná svona hátt upp, fínt að nota metalic liti en common ;) og svo finnst mér breið eyeliner lína allt í lagi ef að augun bera hana, má samt ekki ná langt upp á augnlok ;)

    SvaraEyða
  2. Já við erum greinilega á sama máli með þetta :) En ég er ánægð með varalitina, finnst þeir flottir.

    SvaraEyða
  3. Klesst augnhár? í alvöru talað! oj.
    róleg á smokey-inu og
    breiður eyeliner töff á þeim sem púlla það við þannig tækifæri.
    Þannig eiginlega bara sammála ykkur í þessu öllu saman.

    SvaraEyða
  4. Nei ég held þessar maskaraklessur nái ekki háum hæðum hérlendis. Annars er bara misjafnt eftir tilefninu hvort ég vil að augnskugginn nái alla leið upp. Og ég veit ekki hvort ég púlli svona dökkan varalit en þetta er allavega flott!

    SvaraEyða
  5. get ég fengið símanr þitt svo ég geti panntað ég get ekki gert það í gegnum tölvu.

    svo ég gæti fengið oktobertilboðið....=)
    geggjað blogg

    SvaraEyða