miðvikudagur, 7. mars 2012

Tékkið á þessum :)

Langaði að sýna ykkur eyeliner sem ég er orðin mjög hrifin af, er búin að nota hann í leiksýningu þar sem mikið er um að vera, m.a. ferðir í heita pottinn (ég er ekkert að grínast, með tilheyrandi sulli og látum), og hann helst alveg ótrúlega vel á!

Hér er gersemin - Maybelline Eye Studio Lasting Drama. Hann kostar tæplega 3.000,- krónur í Hagkaup að mig minnir og það besta er að það fylgir bursti með! Hversu frábært er það!

Mæli með að þið kíkið á hann ef ykkur vantar góðan kremliner.

Svo eru smá gleðifréttir: Var að fá nokkra nýja Make Up Geek augnskugga í hús... ásamt blautum eyelinerum frá Palladio og annarri Z Palette - já ég er húkkt! Sýni ykkur góssið við fyrsta tækifæri ;)

xoxo

2 ummæli:

  1. Á þennan og er alveg sammála hann er frábær :) En hann er gel er það ekki? ekki krem?!
    Hulda :)

    SvaraEyða
  2. Jú það er rétt hjá þér, hann heitir gel :)

    SvaraEyða