miðvikudagur, 4. janúar 2012

Áramótin

Áramótaförðunin tók sinn tíma skal ég segja ykkur... Byrjaði á bláu smokey sem kom ágætlega út, setti svo glimmer úr NYX pallettu yfir allt lokið. Ég hef greinilega verið í einhverri vímu að halda að það myndi haldast í nokkra klukkutíma, það fór sko allt strax í línur og augnskugginn með svo ég þreif það snarlega af.

Svona leit þetta út rétt áður en þrifin hófust...

Þá ákvað ég að steinhætta við að nota kreisí liti og notaði hinn fullfallega NN Cosmetics lit Frappe, sem passar við allt og alla. Gerði hefðbundna skyggingu og dundaði mér svo við að líma á mig nokkra steina.


Þar sem ég þoli ekki að eitthvað sé ekki eins báðum megin ákvað ég að gera bara alveg mismunandi steina sitt hvorum megin.



Ég var mjög ánægð með áferðina á húðinni, gleymdi að nota primer en notaði Teint Miracle meikið, kinnalit frá NYX, skyggði með NN Cosmetics púðri og setti svo Wonder Powder frá Make Up Store yfir (það púður er alveg efni í aðra færslu). The Glow - Check!

Svona var mitt áramótalúkk!

Hvernig var þitt??

xoxo

2 ummæli:

  1. Ég fíla þennan lit á augnskugganum.. geggjað kúl :)

    SvaraEyða
  2. Ertu þá að meina bláa eða neðri brúnleita? ;) En já ég fíla þá báða, hehe!

    SvaraEyða