fimmtudagur, 5. janúar 2012

Heimatilbúinn maski úr avocado

Ég geri öðru hverju guacamole, sem mér finnst best í heimi með Doritos, en keypti aðeins of mörg fyrir gamlárskvöld svo ég átti tvö eftir. Haldiði að ég hafi ekki verið glöð þegar ég fann fullt af uppskriftum af avocado-maska!

Avocado er með mjög góðum náttúrulegum (auðvitað) olíum sem eru góðar hvort sem þú lætur þær ofan í þig eða á húðina - sem sagt holl fita. Svo er víst líka eitthvað sem heitir pótassíum í þeim sem heldur húðinni fallegri og hjálpar að viðhalda náttúrulegum ljóma hennar (talandi um The Glow!).

Smá mjólk til að fá rétta áferð (held að hún geri ekkert sérstakt...)

Svo setti ég líka hunang sem á að drepa sýkla á húðinni og gefa frísklegt yfirbragð með því að róa hana.

Ekki slæmt!

Svona förum við að:


 Skerið avocadoið í tvennt - þarna lærði ég eitthvað nýtt því ég hef alltaf flysjað þau! Sem er þvílíkt vesen. Takið steininn úr.

Farið með gaffal meðfram flusinu (flus? Heitir þetta eitthvað annað?) eins og þið gerið með kíví - setjið svo innvolsið í skál. Gerið eins með hinn helminginn. Athugið að það er auðveldara að ná innvolsinu þegar avocadoið er frekar þroskað, það á að vera orðið frekar mjúkt.


Svona lítur það þá út og hefst þá stöppunin.


Stappið vel og vandlega þangað til þetta verður ca. svona...


Þá bætum við hunanginu út í, ca. tvær kúfaðar teskeiðar.


Tvær matskeiðar af mjólk, hræra og voilá!


Berið á og látið vera á í 10-20-30 mín. Hversu lengi sem þið viljið bara, þetta skemmir ekkert húðina ;)

Þetta á svo að gera húðina ljómandi fallega og með fullt af raka!

Látið mig vita ef þið prófið, ég læt vita þegar ég er búin að skella þessu á mig :)

xoxo

Update: Er með hann í þessum töluðu, búinn að vera á í korter og stífnar svolítið. Fann lyktina vel meðan ég setti hann á en nú er hún aðeins daufur ilmur. Alls ekki yfirþyrmandi. Þar sem ég bjó hann til og geymdi inni í ísskáp býst ég við að hann þétti húðina líka, það gerir kuldinn. Hann ætti að endast 2-3 daga inni í ísskáp.


Updat 2: Eftir maskann var húðin mjög stinn en mjúk, húðholurnar höfðu sýnilega dregist saman, sem er ekkert nema gleðilegt! Er mjög ánægð með hann og ætla að sjá hvernig verður ef ég nota hann nokkur kvöld í röð. 

5 ummæli:

  1. Hvernig lykt er af þessu? Ég er frekar ný í því að borða avakadó og finnst það frekar ógeðslegur ávöxtur af því hann er svo mjúkur og slímugur. Og mér finnst rosalega erfitt að vera með eitthvað í andlitinu sem er mikil lykt af.

    SvaraEyða
  2. Hehe... ég skil :) En hmm erfið spurning samt! Það er mjög óræð lykt... svona... fersk/hrein/pínu gras þú veist í haga, nýslegið sko. Skal segja þér hvort ég finn hana mikið þegar ég er búin að setja hann á.

    Hefuru samt gert guacamole? Mér finnst avocado ekki bragðgott eitt og sér í bitum, en oh my í guacamole er ég bara háð því!

    SvaraEyða
  3. Og hvernig er svo húðin eftir? :)

    SvaraEyða
  4. Æði ;) Stinn og minni húðholur!
    Updeitaði bloggið :)

    SvaraEyða
  5. Ég hef ekki verið svo djörf að smakka guacamole. Já ég verð að prufa þennan maska.

    SvaraEyða