Ég hef prófað aðra farða í millitíðinni, t.d. þennan Maybelline farða, stiftfarða frá NN Cosmetics (sem ég fíla reyndar mjög vel), Chanel farða (sem er hættur í sölu svo ég segi ekkert frekar frá honum) og nokkra aðra... En alltaf var hugur minn við þennan, mig langaði alltaf aftur... Hljómar eins og ástaróður!
Ég splæsti svo í hann rétt fyrir jól og var eiginlega orðin viss um að æðislegheitin væru bara ímyndun og hugarórar. Ég væri bara orðin rugluð af biðinni og leitinni. Það var nú aldeilis ekki og ég fékk staðfestingu á að ég væri hvorki sinnissjúk né ímyndunarveik þegar ég fór að nota hann aftur.
Ef þið eruð að leita að TG (The Glow, hinum fullkomna ljóma húðarinnar sem lítur ekki út fyrir að vera sveitt húð eftir þrjú lög á Pósthúsbarnum) þá er þessi málið.
![]() |
Julia klikkar seint! |
Vildi bara minna ykkur á hann ;)
xoxo
Úhh.. kaupi þennan þegar Dior er búinn... :)
SvaraEyðaGetur prófað hann hjá mér fyrst og séð hvernig þú fílar hann :)
SvaraEyðaJiminn.. hljómar svo fullkominn!
SvaraEyðaJahhh segðu ;) Við getum kannski ekki verið með fullkomna húð en þessi kemur manni ansi nálægt því!
SvaraEyðaég var mjög ánægð með hann
SvaraEyðaGaman að heyra :)
SvaraEyðasæl vertu, ég rambaði inn á bloggið þitt í dag... mjög áhugavert og skemmtilegt blogg fyrir snyrtipinna eins og mig (og fleiri), öfunda þig af NAKED pallettunni ;) og þakka þér fróðlegar færslur :)
SvaraEyðaÉg er sammála þér með þennan farða, ég hef verið villt í frumskóginum og prófað þá allmarga (er með húð 43 ára ungrar konu;)) þetta er rosalega góður, eðlilegur farði og endist vel á húðinni,,, ég er samt aðeins smá villt í litunum, nota 03 og finnst hann soldið gultóna... hvað getur þú ráðlagt með það?
kv.Maja
Sæl Maja og takk fyrir það :) Alltaf gaman að heyra að einhver hafi gaman að þessu ;)
SvaraEyðaÉg er með mjög ljósa húð og nota númer 010, svo kemur 1, 2 og 3 o.s.frv. Númer 3 heitir Beige Diaphane en númer 2 heitir Lys Rosé. Beige-ið gefur til kynna að það sé aðeins gulari undirtónn svo ég myndi fara ómáluð í næstu verslun sem selur þetta og fá að prófa að setja númer 2 á þig. Það væri náttúrulega toppurinn ef þær ættu prufu en ég held að það séu bara til prufur af "algengasta" litnum sem er einmitt númer 3.
Ef þú endar svo á að kaupa númer 2 gætirðu jafnvel blandað þeim saman t.d. ef þú verður brún á sumrin og vantar aðeins meiri gylltan blæ.
Vona að þetta hafi hjálpað eitthvað, endilega láttu mig vita hvernig fer :)
Takk fyrir frábært ráð, hélt að 02 væri of ljós fyrir mig, en svo var/er alls ekki raunin, þessi farði er bara þannig :) ég keypti númer 02, prófaði í morgun og þetta virkar... síðan var alveg til að laga samviskubitið yfir því að kaupa nýjan farða að geta blandað þeim saman - snilld :) takk fyrir mig.
SvaraEyðaFrábært að heyra! :D
SvaraEyðaJá einmitt þú þarft þó allavega ekki að henda/gefa hinn ;)